Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 10. ágúst 2022 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Militao ótrúlega snöggur á lappir eftir fall
Mynd: EPA

Real Madrid hafði betur gegn Eintracht Frankfurt er liðin mættust í úrslitaleiknum um evrópska Ofurbikarinn fyrr í kvöld.


Þetta var fyrsti keppnisleikur Real á tímabilinu og ekki var að sjá að leikmenn Frankfurt væru þegar búnir að spila tvo keppnisleiki. 

Bæði lið fengu færi á fyrsta hálftímanum en svo tók Real völdin og stóð uppi sem sigurvegari, 2-0.

Eder Militao átti flottan leik í hjarta varnarinnar og vakti atvik úr leiknum mikla athygli. Þar datt Militao í grasið eftir að hafa stöðvað fyrirgjöf og hreinsað boltann út á kant en var ótrúlega snöggur að standa aftur upp til að setja pressu á andstæðinginn.

Miðvörðurinn spyrnti sér upp með tilþrifum og tapaði ekki mikið meira en einni sekúndu á því að detta.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner