Fotbolti.net
10.08.23 - 18:31
Ívan Guðjón Baldursson

Al-Hilal vann Forest í baráttunni um Ibanez (Staðfest)

Al-Hilal vann Forest í baráttunni um Ibanez (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Sádí-arabíska félagið Al-Hilal hafði betur í baráttunni við Nottingham Forest um brasilíska miðvörðinn Roger Ibanez sem kemur úr röðum Roma.

Ibanez er 24 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í varnarlínu Rómverja síðustu ár. Nottingham Forest reyndi að kaupa hann í sumar en var ekki reiðubúið til að leggja fram jafn mikinn pening og Al-Hilal.

Al-Hilal borgar í heildina um 31 milljón evra fyrir Ibanez, og heldur Roma 20% endursölurétti.

Roma er búið að krækja í miðvörðinn Evan N'Dicka á frjálsri sölu frá Eintracht Frankfurt í sumar og hefur hann hrifið þjálfarateymið á undirbúningstímabilinu. Því þurfti félagið að losa sig við einn miðvörð og hentaði vel að selja Ibanez, enda nokkuð verðmætur leikmaður.

José Mourinho er spenntur fyrir því að nota peninginn sem kemur inn fyrir Ibanez til að styrkja leikmannahópinn sinn.

Al-Hilal vann Forest í baráttunni um Ibanez (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.