Andri Fannar í Elfsborg (Staðfest)

Andri Fannar Baldursson er mættur í gult.

Mynd: Elfsborg

Andri Fannar Baldursson er búinn að skipta yfir til Elfsborg, toppliðsins í Svíþjóð. Hann kemur til félagsins á láni frá ítalska félaginu Bologna en Elfsborg á svo möguleika á því að kaupa hann fyrir ákveðna upphæð.
Andri Fannar, sem er 21 árs gamall, er uppalinn hjá Breiðabliki en fór ungur að árum til Bologna á Ítalíu. Síðustu árin hefur hann farið á lán til FC Kaupmannahafnar í Danmörku og NEC í Hollandi en þær lánsdvalir hafa ekki farið vel.
Það er vonandi að það gangi betur hjá honum í Elfsborg, sem er á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar þegar 18 leikir eru búnir.
„Ég er tilbúinn að byrja. Vonandi get ég afrekað eitthvað gott hjá Elfsborg," segir Andri.
Fyrir hjá Elfsborg er markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson en hann er búinn að vera einn besti leikmaður sænsku deildarinnar á þessu tímabili. Þá er sóknarmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen líka hjá félaginu, en hann tók þátt í skemmtilegu myndbandi sem var notað til að kynna Andra til leiks hjá félaginu. Það myndband má sjá hér fyrir neðan.
„Ég hef spilað með þeim báðum í U21 landsliðinu og við erum góðir vinir. Þeir hafa sagt við mig að Elfsborg er gott í að þróa leikmenn og að fólkið í kringum félagið sé frábært. Þetta er eins og fjölskylda og ég er spenntur að vera hluti af því," segir Andri.

Velkominn ????????????
— IF Elfsborg (@IFElfsborg1904) August 10, 2023
Från @BolognaFC1909en välkomnar vi den isländske landslagsspelaren Andri Baldursson.
Läs mer på https://t.co/dK5ypS2wB3
_________#vitillsammans #elfsborg #borås pic.twitter.com/rBa4U2QbBl