Fotbolti.net
10.08.23 - 18:36
Ívan Guðjón Baldursson

Breiðablik fær Valgerði frá FH (Staðfest)

Breiðablik fær Valgerði frá FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hertz

Breiðablik er búið að krækja í Valgerði Ósk Valsdóttur, sem hefur verið einn af bestu leikmönnum FH í Bestu deild kvenna í sumar.

Valgerður Ósk er fædd 2002 og á tólf leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Hún á rúmlega 70 keppnisleiki að baki fyrir uppeldisfélagið FH en hún kom við hjá Fylki og var þar sumarið 2021 áður en hún sneri aftur til Hafnarfjarðar.

Valgerður gæti reynst mikill liðsstyrkur fyrir Blika og er þetta skellur fyrir FH sem er óvænt í toppbaráttunni. 

Breiðablik og Valur deila toppsætinu sem stendur með 33 stig eftir 15 umferðir en FH er í fimmta sæti með 21 stig og leik til góða.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.