Fotbolti.net
10.08.23 - 18:08
Ívan Guðjón Baldursson

Kane ætlar ekki til Bayern þrátt fyrir samþykkt tilboð

Kane ætlar ekki til Bayern þrátt fyrir samþykkt tilboð
Canon

Mynd: EPA

Enskir fjölmiðlar keppast við að greina frá því að Harry Kane sé ekki á leið til FC Bayern þrátt fyrir að Tottenham hafi samþykkt kauptilboð í hann.

Þýskalandsmeistararnir hafa verið á höttunum eftir Kane í allt sumar og hafa stjórnendur félagsins verið stóryrtir í yfirlýsingum sínum er varða Kane. Þeir halda því fram að leikmaðurinn hafi lofað að ganga til liðs við félagið ef tilboð fengist samþykkt í sumar.

Kane er ekki talinn vera ánægður með hversu málglaðir stjórnendur Bayern hafa verið í fjölmiðlum. Hann lítur ekki á þetta sem fagmannlega hegðun og ætlar að hugsa sín mál betur. 

Þá hafa PSG og Chelsea verið orðuð við Kane undanfarna daga og eru það bæði félög sem geta boðið honum betri samning heldur en Bayern.

Tottenham samþykkti rétt tæplega 100 milljón punda tilboð frá Bayern í Kane. Þessi upphæð er ekki líkleg til að stöðva Chelsea eða PSG. 

Kane á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Tottenham og er félagið reiðubúið til að selja hann í sumar frekar en að missa hann frítt á næsta ári.

Sjá einnig:
Bayern búið að ná samkomulagi við Tottenham um Kane

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.