Fotbolti.net
10.08.23 - 11:00
Elvar Geir Magnússon

„Klopp gæti sagt upp ef vandræði Liverpool halda áfram“

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp gæti sagt upp hjá Liverpool á þessu tímabili ef það þeirra verður í eins mikilli deyfð og það síðasta. Þetta er trú Ian Ladymann, blaðamanns Daily Mail.

Í hlaðvarpsþættinum It's All Kicking Off segir Ladyman að Klopp gæti stokkið frá borði ef hann telji það best fyrir félagið. Liverpool mistókst að tryggja sér Meistaradeildarsæti á síðasta tímabili.
Mikið hefur verið rætt og ritað um vandræðaganginn á miðsvæðinu en Fabinho og Jordan Henderson, sem hafa nú flogið til Sádi-Arabíu, voru langt frá sínu besta.

Félagið hefur fengið þá Dominik Szoboszlai og Alexis Mac Allister til sín en það vantar sárlega varnartengilið. Þá virðist þörf á að liðið styrki varnarlínu sína. Mikil óvissa ríkir hjá liðinu sem hefur leik gegn Chelsea á sunnudag.

„Þetta er risastórt tímabil fyrir Liverpool. Það voru vandræði á síðasta tímabili og ef þau halda áfram núna gætum við upplifað upphaf endisins á stjórnartíð Jurgen Klopp. Ég er ekki viss um að hann muni halda áfram ef Liverpool gerir ekki vel fyrstu sex eða sjö mánuði tímabili," segir Ladyman.

„Ég býst ekki við því að stuðningsmenn snúist gegn honum, nema einhverjir fávitar. Ég held að meirihluti stuðningsmanna muni aldrei vilja missa hann. En ég tel að Klopp sé þannig karakter að ef honum finnst hann ekki vera að ná þessu þá láti hann af störfum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.