Fotbolti.net
10.08.23 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson

Leeds fær Joe Rodon frá Tottenham (Staðfest)

Leeds fær Joe Rodon frá Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Leeds United er búið að tryggja sér velska miðvörðinn Joe Rodon á lánssamningi frá Tottenham sem gildir út tímabilið.

Rodon er 25 ára gamall og voru miklar vonir bundnar við hann þegar hann gekk í raðir Totttenham fyrir þremur árum síðan.

Honum tókst þó aldrei að festa sig í sessi hjá félaginu og var lánaður til Rennes í Frakklandi á síðustu leiktíð, þar sem honum tókst ekki að vinna sér inn byrjunarliðssæti.

Rodon á tvö ár eftir af samningi sínum við Tottenham og mun nú reyna fyrir sér í Championship deildinni, deild sem hann þekkir vel eftir dvöl sína hjá Swansea City áður en hann gekk til liðs við Tottenham.

Leeds er búið að missa nokkra varnarmenn frá sér í sumar og þarf að styrkja hópinn fyrir komandi átök. Félagið stefnir beint aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir svekkjandi fall á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.