Max Aarons kominn til Bournemouth (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Bournemouth er búið að festa kaup á bakverðinum Max Aarons sem er 23 ára gamall og kemur úr röðum Norwich City.
Aarons þótti gríðarlega efnilegur á sínum tíma en hann hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Norwich síðustu fimm ár, eða allt frá 18 ára aldri.
Hann var eftirsóttur af FC Bayern og fleiri félögum en endaði á að vera áfram hjá Norwich. Núna er þó kominn tími fyrir hann til að taka næsta skref á ferlinum og reyna aftur fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni.
Aarons á 70 úrvalsdeildarleiki að baki með Norwich en liðið féll beint aftur niður um deild í bæði skiptin sem það komst upp á síðustu árum.
Bournemouth er talið borga um 10 milljónir punda í heildina fyrir Aarons, sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Norwich. Hann gerir fimm ára samning við Bournemouth.
Aarons hefur verið lykilmaður í U21 liði Englendinga undanfarin ár og vann EM í sumar. Hann á 27 leiki að baki fyrir U21 landsliðið og 213 fyrir Norwich.
Hann er annar leikmaðurinn sem Bournemouth kaupir í dag eftir Alex Scott sem kostaði 25 milljónir punda. Félagið er einnig búið að festa kaup á bakverðinum Milos Kerkez og kantmanninum Justin Kluivert í sumar.
Aarons er hægri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað vinstra megin. Hann mun berjast við Adam Smith og Ryan Fredericks um sæti í byrjunarliðinu.
Another one through the door ???? pic.twitter.com/6NNfoQ9NNF
— AFC Bournemouth ???? (@afcbournemouth) August 10, 2023


Mynd: Getty Images




