Fotbolti.net
10.08.23 - 17:46
Ívan Guðjón Baldursson

Napoli kaupir sænskan landsliðsmann fyrir 12 milljónir (Staðfest)

Jens-Lys Michel Cajuste í landsleik gegn Noregi.

Jens-Lys Michel Cajuste í landsleik gegn Noregi.

Canon

Mynd: EPA

Ítalíumeistarar Napoli eru búnir að festa kaup á sænska landsliðsmanninum Jens Cajuste, sem kemur fyrir 12 milljónir evra.

Cajuste er 24 ára gamall og kemur úr röðum Reims í Frakklandi þar sem hann var, ásamt Folarin Balogun, meðal bestu leikmanna liðsins.

Hann var hjá Midtjylland þar til í fyrra eftir að hafa alist upp hjá Örgryte, en hann á 15 landsleiki að baki fyrir Svíþjóð.

Cajuste bætist við öflugan miðjumannahóp hjá Napoli og gæti þetta þýtt að einhver sé á förum frá félaginu. Stanislav Lobotka, Diego Demme og Zambo Anguissa eru varnarsinnaðari miðjumenn liðsins en Piotr Zielinski og Eljif Elmas eru sóknarsinnaðari.

Cajuste er varnarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig leikið framar á miðjunni og skoraði 6 mörk í 42 leikjum með Reims.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.