Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. september 2020 15:40
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið FH og Stjörnunnar: Óli Kalli byrjar fyrir FH
Óli Kalli síðast þegar að hann mætti Stjörnunni.
Óli Kalli síðast þegar að hann mætti Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Baldvinsson er mættur aftur í byrjunarlið Stjörnunnar.
Guðjón Baldvinsson er mættur aftur í byrjunarlið Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 16:30 hefst stórleikur FH og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla. Leikurinn fer fram í Kaplakrika.

FH vann sér inn sæti í 8-liða úrslit með 3-1 sigri gegn Þór Akureyri á meðan Stjörnumenn unnu 2-1 sigur gegn Víkingi R. Byrjunarliðin eru nú klár.

Hjá FH byrjar fyrrum leikmaður Stjörnunnar, Ólafur Karl Finsen, frammi. Daníel Hafsteinsson er í lekbanni og er því ekki í leikmannahóp FH í dag.

Hjá Stjörnunni koma þeir Guðjón Baldvinsson, Jóhann Laxdal og Þorsteinn Már Ragnarsson inní liðið frá síðasta leik í stað þeirra Sölva Snæs Guðbjargarsonar, Jósefs Kristins Jósefssonar og Kristófers Konráðssonar. Liðin má sjá hér fyrir neðan.

Lestu beina textalýsingu

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
4. Pétur Viðarsson
7. Steven Lennon
9. Jónatan Ingi Jónsson
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
16. Guðmundur Kristjánsson
17. Ólafur Karl Finsen
18. Eggert Gunnþór Jónsson
21. Guðmann Þórisson
29. Þórir Jóhann Helgason

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
4. Jóhann Laxdal
5. Guðjón Pétur Lýðsson
7. Guðjón Baldvinsson
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
22. Emil Atlason
29. Alex Þór Hauksson (f)

Lestu beina textalýsingu
Athugasemdir
banner
banner
banner