Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 10. september 2021 11:24
Elvar Geir Magnússon
Nuno og Antonio bestir í ágúst
Nuno Espirito Santo.
Nuno Espirito Santo.
Mynd: EPA
Tottenham vann alla þrjá leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í ágúst án þess að fá á sig mark. Nuno Espirito Santo hefur verið valinn stjóri mánaðarins í ágúst.

Nuno tók við Tottenham í sumar og fer stjóratíð hans glimrandi vel af stað.

Leikmaður mánaðarins er Michail Antonio sem er þegar kominn með fjögur mörk og þrjár stoðsendingar fyrir West Ham.

Þetta er í annað sinn sem Antonio er valinn leikmaður mánaðarins en hann hlaut verðlaunin einnig í júlí 2020.

Þessi 31 árs leikmaður fer gríðarlega vel af stað á nýju tímabili og segir við heimasíðu West Ham að þessi verðlaun hvetji hann bara frekar til dáða.
Athugasemdir
banner
banner
banner