10.09.26 - 14:43
Kári Snorrason
Annað árið í röð sem bræður mætast á Laugardalsvelli - „Held ég þurfi að taka þennan“

Frá æfingu U21-landsliðsins 2016, Magnús var þar að störfum fyrir Fótbolta.net.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hanna Símonardóttir, móðir Magnúsar og Antons, í sérsaumaðri treyju Aftureldingar og Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrick og Jeppe mættust á Laugardalsvelli í fyrra.

Mynd: Aðsend

Bræðurnir Magnús Már og Anton Ari Einarssynir munu mætast í úrslitaleik Mjólkurbikarsins annað kvöld þar sem Afturelding og Breiðablik eigast við.
Verður það annað árið í röð þar sem bræður munu mætast í úrslitum Mjólkurbikarsins en Jeppe og Patrick Pedersen mættust í úrslitaleik Vals og Vestra á síðasta ári.
Jeppe skoraði eina mark leiksins með glæsilegu skoti fyrir utan teig en Patrick varð fyrir því óláni að slíta hásin í leiknum.
Magnús Már, þjálfari Aftureldingar, ræddi um hvernig það væri að mæta bróður sínum á Laugardalsvelli í hlaðvarpinu Einn Tveir, sem er í umsjón Alberts Ingasonar og Ásgeirs Barkar Ásgeirssonar.

TENGT EFNI
Magnús Már: Segir sig sjálft á hverjum pressan er
„Þetta er 'win-win', þú ert alltaf með sigurvegara. Ég held að það sé ekki oft út í heimi sem að foreldrar mæta á bikarúrslitaleiki vitandi það að barnið þitt verður bikarmeistari.“
„Ég hef verið að tala um það að Anton eigi fullt af titlum. Ég held að ég þurfi að taka þennan,“ sagði Magnús léttur aðspurður um hvorn fjölskyldan myndi styðja og fór síðar fögrum orðum um bróður sinn.
„Anton hefur átt frábæran feril og unnið marga titla. Gert ótrúlega vel. Það hefur margt vatn runnið til sjávar síðan ég setti hann í markið fjögurra ára svo ég hefði einhvern til að skjóta á. Ég fékk að bomba á hann og honum tókst að vaxa og verða betri. Það verður gaman að mæta honum,“ sagði Magnús að lokum.

Heimild: Einn Tveir