Steve Bruce, stjóri Newcastle, verður rekinn úr starfi í þessari viku en the Mirror fullyrðir þessar fréttir.
Bruce er afar valtur í sessi þessa stundina eftir að Mike Ashley ákvað að selja félagið til nýrra eigenda frá Sádí-Arabíu.
Bruce hefur sjálfur viðurkennt að hann óttist eigið starf en Sádarnir ætla sér stóra hluti og er Bruce ekki hluti af þeirra hugmyndum.
Óvíst er hver tekur við af Bruce en Antonio Conte og Zinedine Zidane eru sagðir vera á óskalista liðsins sem væri stórt stökk.
Nýir eigendur Newcastle munu pumpa mikið af peningum í félagið og má búast við stórum nöfnum til félagsins á næsta ári.
Athugasemdir