Fotbolti.net
16.10.26 - 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið ÍBV og FH: Tveir ungir Eyjamenn byrja sinn fyrsta leik

Emil Gautason byrjar hjá ÍBV.

Emil Gautason byrjar hjá ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:00 hefst 26. umferðin í Bestu deildinni þegar ÍBV tekur á móti FH. ÍBV er í botnsæti deildarinnar og getur ekki haldið sæti sínu í deildinni þegar sex stig eru eftir í pottinum. FH er í 9. sæti og er allt nema tölfræðinni frá því að vera með öruggt sæti í deildinni, sex stig eru niður í Þór og FH er með miklu betri markatölu.

Tveir leikmenn ÍBV taka út leikbann í dag en það eru þeir Milan Tomic og Eiður Atli Rúnarsson. Adolf Daði Birgisson er ekki með FH þar sem hann komst ekki í Herjólf í morgun eins og lesa má um hér að neðan.

Leikurinn átti að fara fram á morgun en honum var flýtt vegna veðurs.
Svekktur Adolf Daði missir af leiknum - „Hefði bara sleppt þessu prófi hefði ég vitað þetta fyrr"
TENGT EFNI

Svekktur Adolf Daði missir af leiknum - „Hefði bara sleppt þessu prófi hefði ég vitað þetta fyrr"

Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 0 FH
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, gerir fjórar breytingar frá tapinu gegn Þór í síðustu umferð. Emil Gautason sem fæddur er 2010 byrjar sinn fyrsta leik í Bestu deildinni og Heiðmar Þór Magnússon sem fæddur er 2008 gerir slíkt hið sama. Heiðmar er yngri bróðir Sigurðar Arnars sem sömuleiðis er í byrjunarliðinu. Omar Sowe kemur líka inn í byrjunarliðið. Milan Tomic tekur út leikbann, Aron Lucas Vokes er ekki með og Róbert Elís Hlynsson tekur sér sæti á bekknum.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, gerir eina breytingu frá sigrinum gegn Val í síðustu umferð. Guðmundur Andri Tryggvason kemur inn fyrir Adolf Daða sem skráður er á meðal varamanna.

Byrjunarlið ÍBV

  • 33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
  • 2. Sigurður Arnar Magnússon
  • 4. Mattias Edeland
  • 8. Bjarki Björn Gunnarsson
  • 17. Emil Gautason
  • 23. Arnór Ingi Kristinsson
  • 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
  • 26. Felix Örn Friðriksson
  • 28. Heiðmar Þór Magnússon
  • 30. Vicente Rafael Valor Martínez
  • 67. Omar Sowe

Byrjunarlið FH

  • 1. Jökull Andrésson (m)
  • 2. Birkir Valur Jónsson
  • 5. Oliver Stefánsson
  • 7. Kjartan Kári Halldórsson
  • 9. Kristján Flóki Finnbogason
  • 11. Guðmundur Andri Tryggvason
  • 17. Jóhannes Kristinn Bjarnason
  • 22. Ísak Óli Ólafsson (f)
  • 23. Tómas Orri Róbertsson
  • 32. Gils Gíslason
  • 37. Baldur Kári Helgason
Adolf Daði skráður á meðal varamanna.

Adolf Daði skráður á meðal varamanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Andri kemur inn í lið FH.

Guðmundur Andri kemur inn í lið FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sowe kemur inn í lið ÍBV.

Sowe kemur inn í lið ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur25-531
2Stjarnan25-1231
3FH25-430
4KA25-1026
5Þór25-3324
6ÍBV25-1619
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.