Fotbolti.net
10.11.16 - 11:53
Magnús Már Einarsson

Raggi Sig á flugi með Fulham: Held að við getum farið upp

Auglýsing
Ragnar slakar á fyrir landsliðsæfingu í Parma í dag.

Ragnar slakar á fyrir landsliðsæfingu í Parma í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Icelandair
„Ég er mjög ánægður og hamingjusamur með þetta,\" sagði Ragnar Sigurðsson, varnarmaður Fulham, í viðtali við Fótbolta.net í dag aðspurður út í lífið hjá nýju félagi í London.
Ragnar hefur fest sig í sessi í vörn Fulham eftir að hann kom til félagsins frá Krasnodar í sumar. Fulham gekk ekki vel í byrjun tímabils en hefur verið á flugi undanfarnar vikur og er nú komið í 8. sæti í Championship deildinni eftir einungis eitt tap í síðustu fimm leikjum.

„Það er búið að ganga aðeins betur hjá liðinu. Við erum búnir að vinna tvo í röð og halda hreinu,\" sagði Ragnar.

„Ég held að við getum farið upp. Það var ótrúlegt hvað gekk illa fyrst eftir að ég kom. Við vorum oft að yfirspila þessi lið en vorum að fá okkkur skyndisóknarmörk og tapa leikjunum þannig. Ég tel að við eigum allavega að vera í topp sex.\"

Championship deildin er krefjandi og Ragnar segir að hún sé erfiðari en hann bjóst við.

„Deildin hefur komið mér svolítið á óvart. Ég hafði heyrt að deildin væri erfið en ég vissi ekki að hún væri svona erfið. Það er ekki sjúkur hraði í deildinni en það er góðir leikmenn og flest allir framherjarnir eru mjög snöggir eða mjög sterkir. Það er gaman að þessu,\" sagði Ragnar.

Lengra viðtal við Ragnar birtist á Fótbolta.net síðar í dag en þar ræðir hann landsleikinn mikilvæga gegn Króötum á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.