Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. janúar 2020 11:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðar yfirgefur Rubin Kazan (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson verður ekki áfram hjá Rubin Kazan á láni frá Rostov í Rússlandi. Þetta hefur verið staðfest með færslu Rubin á Twitter reikningi sínum.

Líklegast er talið að Viðar verði ekki lengi hjá Rostov því áhugi er á Viðari í Svíþjóð. Þar eru Malmö og Hammarby sögð hafa áhuga á framherjanum.

Þá hafa lið í Kína og Tyrklandi einnig áhuga á landsliðsframherjanum.

Viðar skoraði eitt mark í sextán deildarleikjum með Rubin, til þessa hefur hann ekki skorað mark í átta deildarleikjum með Rostov.


Athugasemdir
banner
banner