Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 11. janúar 2021 18:25
Brynjar Ingi Erluson
Sokratis vill fara til Real Betis
Sokratis er á förum frá Arsenal
Sokratis er á förum frá Arsenal
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Betis hefur mikinn áhuga á því að fá gríska varnarmanninn Sokratis frá Arsenal en þetta kemur fram á Goal.com.

Sokratis er 32 ára gamall og er aftarlega í goggunarröðinni hjá Arsenal en hann var ekki valinn í Evrópu- og úrvalsdeildarhóp liðsins fyrir tímabilið.

Það er mikill áhugi á gríska miðverðinum en Real Betis, Genoa og Getafe vilja fá hann.

Samkvæmt Goal.com er Real Betis að leiða kapphlaupið um hann en félagið þarf þó að selja leikmenn áður en það reynir við Sokratis.

Betis ætlar að losa sig við brasilíska varnarmanninn Sidnei í þessum glugga og þá gæti William Carvalho farið til Benfica.

Manuel Pellegrini, fyrrum stjóri Real Madrid og West Ham, er að þjálfa Betis.
Athugasemdir
banner
banner