11.01.22 - 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Afríkukeppnin í dag - Stærsta stjarnan mætir til leiks

Mohamed Salah.

Mynd: Getty Images

Mohamed Salah.

Mynd: Getty Images
Það eru þrír leikir á dagskrá í riðlakeppni Afríkukeppninnar, AFCON, þennan þriðjudaginn.
Mohamed Salah, stærsta stjarna mótsins, mætir til leiks klukkan 16:00 þegar Egyptaland og Nígería eigast við. Þetta eru lið sem ætla sér langt.
Riyad Mahrez og félagar í Alsír mæta Síerra Leóne í fyrsta leik dagsins klukkan 13:00. Kwame Quee, sem spilaði með Víkingum síðasta sumar, er leikmaður Síerra Leóne og verður fróðlegt að sjá hvort hann fái tækifærið í dag.
Þá mætast Súdan og Gínea-Bissá í lokaleik dagsins klukkan 19:00. Leikirnir eru sýndir á Viaplay.
Leikir dagsins:
13:00 Alsír - Síerra Leóne
16:00 Nígería - Egyptaland
19:00 Súdan - Gínea-Bissá