Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 11. janúar 2022 22:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Wilson og Mitrovic fóru hamförum í stórsigri
Tvö mörk og tvær stoðsendingar hjá Wilson í kvöld
Tvö mörk og tvær stoðsendingar hjá Wilson í kvöld
Mynd: Getty Images
Reading 0 - 7 Fulham
0-1 Harry Wilson ('13 )
0-2 Aleksandar Mitrovic ('45 , víti)
0-3 Harry Wilson ('60 )
0-4 Kenny Tete ('68 )
0-5 Neeskens Kebano ('70 )
0-6 Tosin Adarabioyo ('75 )
0-7 Aleksandar Mitrovic ('89 )

Reading fékk Fulham í heimsókn í næst efstu deild á Englandi í kvöld. Gestirnir fóru hamförum í leiknum.

Fyrsta markið kom eftir 13 mínútna leik en það skoraði Harry Wilson. Aleksandar Mirtrovic bætti öðru markinu við af vítapunktinum þegar skammt var til hálfleiks.

Eftir klukkutíma leik skoraði Wilson þriðja mark Fulham og annað mark sitt. Tíu mínútum síðar var staðan orðin 5-0 en á tveggja mínútna kafla skoruðu Kenny Tete og Neeskens Kebano.

Mitrovic og Wilson lögðu upp sitt markið hvor.

Fulham liðið var ekki búið að segja sitt síðasta en Wilson lagði upp sitt annað mark, nú á Adarabioyo og Mitrovic negldi síðasta naglann í kistu Reading. 0-7 lokatölur.
Athugasemdir
banner
banner
banner