Fotbolti.net
11.01.22 - 19:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Chris Wood í læknisskoðun hjá Newcastle

Chris Wood í læknisskoðun hjá Newcastle
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjaleit Newcastle virðist vera lokið en liðið hefur verið í leit af nýjum leikmanni í fremstu víglínu eftir að það kom í ljós að Callum Wilson verði frá næstu tvo mánuðina.
Samkvæmt heimildum Sky Sports er Chris Wood leikmaður Burnley mættur í læknisskoðun hjá Newcastle. Burnley vildi alls ekki missa leikmanninn en Newcastle virkjaði ákvæði í samningi leikmannsins.

Kaupverðið er talið vera 20 milljónir punda.

Þessi þrítugi Nýsjálendingur hefur skorað þrjú mörk fyrir Burnley á þessari leiktíð sem er sæti ofar en Newcastle á markatölu. Liðin eru í 18. og 19. sæti.

Annar framherji gæti verið á leið til Newcastle í janúar en Hugo Ekitke leikmaður Reims er sagður vera í viðræðum við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.