Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. janúar 2023 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Rutter á leið til Leeds
Mynd: EPA
Leeds United er að ganga frá kaupum á franska sóknarmanninum Georginio Rutter frá Hoffenheim.

Rutter er tvítugur og uppalinn í Rennes í Frakklandi en hélt til Þýskalands fyrir tveimur árum og samdi þá við Hoffenheim.

Á þessu tímabili hefur hann skorað tvö og lagt upp tvö í fimmtán leikjum með Hoffenheim.

Franski sóknarmaðurinn er þekktur fyrir sprengikraft sinn og gríðarlegan líkamlegan styrk en hann er nú á leið til Englands og mun ganga í raðir Leeds.

Rutter náði samkomulagi um kaup og kjör við Leeds á dögunum og nú er félagið að ganga frá samningum við Hoffenheim en kaupverðið er í kringum 25 milljónir punda.

Ef allt gengur upp mun hann gangast undir læknisskoðun á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner