Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. janúar 2023 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrjú félög áhugasöm um leikmanninn sem Mourinho þolir ekki
Rick Karsdorp og Jose Mourinho.
Rick Karsdorp og Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Í nóvember á síðasta ári lét Jose Mourinho, stjóri Roma, allt flakka þegar hann ræddi um einn af leikmönnum sínum.

Roma gerði 1-1 jafntefli gegn Sassuolo í ítölsku úrvalsdeildinni. Mourinho var mjög reiður út í einn leikmann sem hann nefndi ekki á nafn en sagði hann hafa svikið félagið með óíþróttamannslegri hegðun.

Hann var þar að ræða um hollenska varnarmanninn Rick Karsdorp sem var harðlega gagnrýndur fyrir slakan varnarleik í leiknum.

Mourinho vill losna við leikmanninn og samkvæmt Gianluca Di Marzio eru þrjú félög áhugasöm um hann.

Hann nefnir þar Monza á Ítalíu og svo tvö félög á Englandi; Bournemouth og Southampton.

Það eru allar líkur á því að leikmaðurinn muni yfirgefa Roma núna í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner