Tveir síðustu leikirnir í fimmtu umferð enska bikarsins fara fram í kvöld en Wolves og Southampton eigast við á Molineux-leikvanginum klukkan 17:30.
Wolves hefur unnið Crystal Palace og Chorley á meðan Southampton hefur unnið Shrewsbury Town og Arsenal.
Barnsley fær verðugt verkefni er Chelsea heimsækir liðið klukkan 20:00. Chelsea hefur farið nokkuð þægilega leið í bikarnum til þessa en liðið mætti Morecambe í þriðju umferð og Luton Town í fjórðu umferðinni.
Leikir dagsins:
17:30 Wolves - Southampton
20:00 Barnsley - Chelsea
Athugasemdir