Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. febrúar 2021 20:03
Victor Pálsson
Mikilvægasti leikmaður Sociedad ekki með gegn Man Utd
Mynd: Getty Images
Real Sociedad verður án lykilmanns er liðið spilar við Manchester United í Evrópudeildinni á fimmtudag.

Mikel Oyarzabal er mikilvægasti leikmaður Sociedad en hann mun ekki taka þátt í 32-liða úrslitunum vegna meiðsla aftan í læri.

Greint er frá því í kvöld að Oyarzabal muni missa af báðum leikjum liðanna en hann verður frá í allt að sex vikur.

Oyarzabal er 23 ára gamall vængmaður og á að baki 228 leiki fyrir Sociedad og hefur í þeim skorað 61 mark.

Einnig á Oyarzabal að baki 11 landsleiki fyrir Spán og er talinn öflugasta vopn Sociedad í sókninni.

Oyarzabal hefur skorað 14 mörk í 28 leikjum á tímabilinu fyrir félag og þjóð.
Athugasemdir
banner
banner
banner