Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 11. febrúar 2021 12:30
Elvar Geir Magnússon
Muller greinist með Covid-19 rétt fyrir úrslitaleikinn
Thomas Muller í Katar.
Thomas Muller í Katar.
Mynd: Getty Images
Bayern München mun mæta mexíkóska liðinu Tigres í úrslitaleik HM félagsliða í Katar í kvöld.

Leikurinn fer fram í Katar og hefst klukkan 18:00, hann verður sýndur beint á RÚV 2.

Bæjarar verða án sóknarleikmannsins Thomas Muller sem hefur greinst með Covid-19 veiruna, nokkrum klukkustundum fyrir úrslitaleikinn.

Muller hefur verið funheitur, skorað tíu mörk og átt ellefu stoðsendingar í 20 leikjum í þýsku Bundesligunni á þessu tímabili.

Leon Goretzka og Javi Martínez missa einnig af úrslitaleiknum eftir að hafa smitast af veirunni.

Bayern komst í úrslitaleikinn með því að vinna Al Ahly í undanúrslitum eftir tvö mörk frá Robert Lewandowski.

Sjá einnig:
Lewandowski: Getum skráð okkur á spjöld sögunnar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner