Laufey Harpa aftur heim í Tindastól (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Laufey Harpa Halldórsdóttir er gengin til liðs við uppeldisfélagið sitt Tindastól. Hún kemur á láni frá Breiðabliki.
Laufey gekk til liðs við Breiðablik frá Tindastóli fyrir síðasta tímabil þar sem hún lék átta leiki í Bestu deildinni og skoraði eitt mark.
Hún á að baki 104 leiki með Tindastóli í deild og bikar, þann fyrsta árið 2015, þá aðeins 15 ára gömul.
Hún á að baki sex leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Tindastóll verður nýliði í Bestu deildinni eftir að hafa hafnað í 2. sæti á eftir FH í Lengjudeildinni síðasta sumar þar sem liðið var aðeins eitt sumar eftir að hafa fallið árið á undan.




