Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 11. mars 2020 19:50
Ívan Guðjón Baldursson
Jákup Thomsen til HB (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jákup Ludvig Thomsen er genginn í raðir HB í Færeyjum eftir misheppnaða dvöl í Hafnarfirði.

Jákup er 22 ára gamall og hefur leikið með FH að láni frá Midtjylland síðustu misseri.

Jákup tókst að skora sex mörk í 24 keppnisleikjum með FH.

Hann gæti reynst mikilvægur liðsstyrkur fyrir Havnar Bóltfelag sem endaði í fjórða sæti í fyrra.

Jákup á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Færeyjar og lék yfir 30 leiki fyrir yngri landsliðin.
Athugasemdir
banner
banner