fös 11.apr 2025 11:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 4. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Þróttur Reykjavík muni enda í fjórða sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Þrótti er spáð fjórða sæti eftir að hafa endað í því fimmta í fyrra.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. Þróttur R., 71 stig
5. Þór/KA, 67 stig
6. Stjarnan, 48 stig
7. FH, 47 stig
8. Fram, 25 stig
9. FHL, 19 stig
10. Tindastóll, 16 stig
Um liðið: Þróttarar gengu í gegnum breytingar fyrir síðasta tímabil. Nik Chamberlain hafði stýrt liðinu lengi en hann ákvað að róa á önnur mið og tók Ólafur Kristjánsson við af honum. Það gekk frekar brösulega til að byrja með og vann liðið sinn fyrsta leik ekki fyrr en í júní þegar Tindastóll kom í heimsókn í Laugardalinn. Það var þungu fargi létt af Þrótturum eftir það og komst liðið á dramatískan hátt í efri hlutann undir lok mótsins þegar sigur vannst á Stjörnunni með marki í uppbótartíma. Þróttur hefur sýnt mikinn metnað á leikmannamarkaðnum í vetur og það verður fróðlegt að fylgjast með liðinu í sumar.
Þjálfarinn: Ólafur Kristjánsson er að fara inn í sitt annað tímabil sem þjálfari Þróttar. Hann tók við liðinu fyrir síðasta tímabil og var það í fyrsta sinn þar sem hann var að þjálfa stelpur. Prófessorinn, eins og hann er kallaður, var síðast hjá Breiðabliki sem yfirmaður fótboltamála áður en hann tók til starfa í Laugardalnum en hann hefur á sínum þjálfaraferli stýrt Fram, Breiðabliki, Nordsjælland, Randers, Esbjerg og FH. Hann gerði Breiðablik bæði Íslands- og bikarmeistara á tíma sínum þar og það er spurning hvort að hann geti hjálpað Þrótti að vinna svo stóra titla. Það er draumur um að það gerist í Laugardalnum.
Álit Magga
Magnús Haukur Harðarson, fyrrum þjálfari Fjölnis, er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Fer allt upp um stig og jafnvel nokkur
„Eftir brösuga byrjun á síðasta tímabili fann liðið taktinn og mörkin fóru að detta inn. Með heimkomu Katie Cousins fer allt upp um stig og jafnvel nokkur."
„Óli hefur verið klókur að sækja leikmenn og hefur hann styrkt byrjunarliðið sitt mikið sem og breikkað hópinn sinn sem þýðir að Þróttur getur verið í baráttu um efstu sætin í deildinni. Skipulag og þekking er aðalsmerki þjálfarans og leikmenn sýndu það á síðusta tímabili að leikmenn eru klárar í að framfylgja því."
„Ég á enn eftir að sjá hver ætlar að skora þessi 10+ mörk sem liðið þarf nauðsynlega að fá inn til að geta verið í Evrópubaráttu en þéttur varnarleikur gerir líka kraftaverk. Einnig verður spennandi að sjá unga leikmenn stíga sín fyrstu skref í efstu deild en Þróttur hefur verið að gera virkilega vel í yngri flokka starfi sínu og í raun ótrúlegt að það séu ekki fleiri unglingalandsliðskonur frá Þrótti en það er svo önnur pólitík."
„Það er alltaf stemming í Hjarta Reykjavíkur og iðkenndur sérstaklega sjánlegir á vellinum sem ég sakna á öðrum völlum deildarinna. Þróttur þarf fljúgandi byrjun og þá fer allt vel."
Lykilmenn: Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Katie Cousins
Álfhildur Rósa er gríðarlega reynslumikill leikmaður þrátt fyrir ungan aldur. Hún er líka ótrúlega mikill Þróttari og ber fyrirliðabandið í þessu spennandi liði. Hún er leiðtogi og frábær alhliða miðjumaður sem bindur vörn og sókn saman. Með henni á miðsvæðinu er Katie Cousins sem er komin aftur í Þrótt eftir dvöl hjá Val. Hún er klárlega einn af bestu leikmönnum deildarinnar og mætir með ótrúlega mikil gæði inn í þetta lið. Hún mun skora og leggja upp fyrir Þrótt í sumar, og þá mun hún líklega aldrei tapa boltanum en hún gerir það yfirleitt ekki. Ótrúlega stórt fyrir Þrótt að fá hana til baka.
Gaman að fylgjast með: Unnur Dóra Bergsdóttir
Unnur Dóra kemur til með að byrja tímabilið sem sóknarmaður í liði Þróttar. Hún er vanari því að spila sem djúpur miðjumaður og því verður fróðlegt að sjá hana í þessu hlutverki. Hún er líka í fyrsta sinn að spila með öðru liði en Selfossi og verður það athyglisvert. Mjög sterkur karakter sem mun bæta lið Þróttar í sumar. Það eru einnig ungir og efnilegir leikmenn sem gaman verður að fylgjast með og ber þar líklega hæst Brynja Rán Knudsen, sem er fædd árið 2007.
Komnar:
Katie Cousins frá Val
Þórdís Elva Ágústsdóttir frá Växjö
Mist Funadóttir frá Fylki
Unnur Dóra Bergsdóttir frá Selfossi
Klara Mist Karlsdóttir frá Fylki
Birna Karen Kjartansdóttir frá Breiðabliki
Hildur Laila Hákonardóttir frá KR (var á láni)
Farnar:
Leah Pais til Kanada
Elín Metta Jensen í Val
Samningslausar:
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (2001)
Þórey Hanna Sigurðardóttir (2008)
Fyrstu fimm leikir Þróttar:
15. apríl, Þróttur R. - Fram (AVIS völlurinn)
22. apríl, Þróttur R. - Breiðablik (AVIS völlurinn)
29. apríl, Víkingur R. - Þróttur R. (Víkingsvöllur)
3. maí, Þróttur R. - Tindastóll (AVIS völlurinn)
8. maí, Valur - Þróttur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Spámennirnir: Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Brynjar Óli Ágústsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Mist Rúnarsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke og Sölvi Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Athugasemdir