Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   lau 11. apríl 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfarinn ósáttur með Endrick - „Ég býst við meiru af honum“
Endrick var kaldur gegn Angers
Endrick var kaldur gegn Angers
Mynd: Lyon
Paulo Fonseca, þjálfari Lyon í Frakklandi, er óánægður með brasilíska framherjann Endrick og segir hann bera mikla ábyrgð í liðinu.

Brasilíumaðurinn kom til Lyon á láni frá Real Madrid í byrjun ársins og verið stórkostlegur.

Hann er með sex mörk í fimmtán leikjum og verið mikilvægur í baráttu liðsins um Meistaradeildarsæti.

Frammistaða hans með Lyon kom honum aftur í brasilíska landsliðið en Fonseca er óánægður með framlag hans eftir landsliðsverkefnið og segir að hann þurfi að gera meira.

„Ég er ekki ánægður með frammistöðu Endrick. Ég er ekki hér til að brjóta niður leikmenn en ég býst við meiru frá leikmanni eins og Endrick og ég tel hann bera skyldu til að gera betur. Hann sagðist vera svolítið þreyttur eftir ferðina til baka frá Orlando, en hann verður að gera meira,“ sagði Fonseca.

Hann byrjaði inn á í markalausa jafnteflinu gegn Angers á sunnudag en náði ekki að finna sig þar. Einkunnagjöf hans var mismunandi á helstu forritunum en hann fékk 7,1 á FotMob, 6,9 á SofaScore og 6,6 á FlashScore. Nokkrum dögum áður hafði hann fiskað víti og lagt upp mark í 3-1 sigri Brasilíu gegn Króatíu.

Lyon hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum sínum og aðeins skorað þrjú mörk í síðustu sex leikjum.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner