Fotbolti.net
11.05.19 - 17:30
Daníel Geir Moritz

Aron: Sá hvernig Víðir gerði þetta og ákvað að endurtaka

Auglýsing
Aron í leik með Grindavík í sumar.

Aron í leik með Grindavík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Markið var ágætt og tryggði okkur stig í dag sem er fínt úr því sem komið var. Víðir skoraði ágætt mark sjálfur svo þetta var okkar dagur í dag," sagði Aron Jóhannsson leikmaður Grindavíkur sem skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu gegn ÍBV í dag og tryggði þar með 2-2 jafntefli. Víðir Þorvarðarson leikmaður ÍBV hafði fyrr í leiknum skorað samskonar mark fyrir heimamenn í eyjum.
„Ég sá hvernig hann gerði þetta og ákvað að endurtaka leikinn," sagði Aron við Fótbolta.net eftir leik.

Hin tvö mörkin í leiknum voru svo sjálfsmörk sem hvort lið um sig skoraði.

„Þetta er svolítið spes. Ævintýrin gerast hérna í eyjum, það er nokkuð ljóst," sagði Aron en nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.

Leikurinn var stopp í 20 mínútur eftir að Sigurjón Rúnarsson leikmaður Grindavíkur fékk höfuðhögg og þurfti að fara með sjúkrabíl af vettvangi.

„Hann var mættur hérna áðan og stóð í báða fætur sem er frábært. Hann var með klakapoka á hnakkanum og brosandi sem er fyrir öllu. Það er mjög ánægjulegt að það fór ekki verr," sagði Aron.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.