Özan Kabak, varnarmaður Liverpool, verður líklega ekki búinn að ná sér fyrir leikinn gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á fimmtudag.
Kabak, sem er á láni frá Schalke, hefur spilað vel í vörn Liverpool frá því hann kom í janúar en hann missti af síðasta leik liðsins gegn Southampton.
Paul Joyce, blaðamaður á Times, segir að Kabak er í baráttu við tímann um að ná leiknum gegn United á fimmtudag og er ekki búist við því að hann verði í byrjunarliðinu.
Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho hefur leyst af í miðverðinum á þessu tímabili og er útlit fyrir að hann geri það gegn United.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, mun þá væntanlega gera margar breytingar á liði sínu en liðið spilar samtals fjóra leiki á átta dögum. United mætti Aston Villa á laugardag, spilar við Leicester í kvöld, Liverpool á fimmtudag og Fulham á sunnudag.
Athugasemdir