Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 11. maí 2022 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sólveig og þrjár unglingalandsliðskonur lánaðar frá Val (Staðfest)
Sólveig í leik með Val.
Sólveig í leik með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur lánað fjóra leikmenn í önnur félög á þessum lokadegi félagaskiptagluggans.

Stærst er að Sólveig Jóhannesdóttir hefur verið lánuð til nýliða Aftureldingar. Sólveig er búin að koma við sögu í þremur leikjum hjá Val á tímabilinu en mun leika með Aftureldingu næstu vikurnar.

Sólveig kemur til með að hjálpa Aftureldingu mikið í ljósi þess hve miklu meiðslavandræðum liðið er búið að vera í undanfarið.

Þrjár lánaðar í KH
Þá hafa þrjár unglingalandsliðskonur verið lánaðar í venslafélagið KH sem leikur í 2. deild.

Um er að ræða Evu Stefánsdóttur, Jönu Sól Valdimarsdóttur og Karen Guðmundsdóttur. Eru það ungir og efnilegir leikmenn sem koma til með að hjálpa KH mikið.
Athugasemdir
banner
banner
banner