Fotbolti.net
11.06.13 - 07:00
Daníel Freyr Jónsson

Real Madrid kaupir Casemiro (Staðfest)

Casemiro.

Casemiro.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur keypt brasilíska miðjumanninn Casemiro eftir hálfs árs lánsdvöl hjá félaginu.
Real greiddi Sao Paolo 6 milljónir evra fyrir leikmanninn sem skrifaði undir fjögurra ára samning á Santiago Bernabeu.

Casemiro, sem er 21 árs gamall, lék einn leik með Real í La Liga, auk þess sem hann spilaði 15 leiki með B-liði Real Madrid eftir áramót. Þá á hann að baki 3 leiki með brasilíska landsliðinu.

Hann er önnur kaup félagsins í sumar, en áður hafði Real tryggt sér þjónustu Dani Carvajal frá Bayer Leverkusen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.