Fotbolti.net
11.06.17 - 21:54
Mist Rúnarsdóttir

Emil Hallfreðs: Held ég hafi átt góðan leik í dag

Auglýsing
Emil Hallfreðs: Held ég hafi átt góðan leik í dag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Emil Hallfreðsson var öflugur á miðju íslenska landsliðsins í 1-0 sigrinum gegn Króatíu í undankeppni HM 2018 í kvöld.

Emil var að vonum ánægður með leik dagsins og stigin þrjú.
„Ég held að 1-0 á móti Króatíu á heimavelli sé þokkaleg úrslit. Mér fannst þeir ekki skapa sér mikið og mér fannst við vinna þá á baráttunni og þeim sviðum sem við ætluðum að gera. Þetta gekk nokkuð vel í dag,\" sagði Emil eftir leikinn, sem viðurkenndi að menn hefðu verið farnir að sætta sig við eitt stig í lokin.

„Alveg eins, en við ætluðum að reyna að setja inn sigurmarkið og það gekk eftir. Það var ótrúlega sætt í endann.\"

Næsti leikur er gegn Finnlandi á útivelli og Emil er vel stemmdur fyrir þann leik.

„Það verður gríðarlega erfiður leikur, þeir gáfu okkur hörkuleik hérna heima þannig ég held við þurfum að vera tilbúnir í alveg eins slag og í dag ef við viljum taka þrjú stig þar,

Emil sagði fyrir leik að hann vildi fá að spila á miðjunni og hann fékk þá ósk uppfyllta í dag.

„Mér fannst þetta mjög skemmtilegt í dag og ég held ég hafi átt góðan leik í dag,\" sagði Emil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.