Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   fim 11. júní 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Kristján Gauti á leið í FH
Kristján Gauti Emilsson spilar með FH-ingum í sumar
Kristján Gauti Emilsson spilar með FH-ingum í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hafnfirðingurinn Kristján Gauti Emilsson er á leið aftur í FH en þetta herma öruggar heimildir Fótbolta.net. Þetta eru afar óvæntar fréttir en hann lagði skóna á hilluna fyrir fjórum árum er hann var á mála hjá hollenska félaginu NEC Nijmegen.

Kristján Gauti er 27 ára gamall og uppalinn FH-ingur en hann þótti einn efnilegasti leikmaður landsins fyrir rúmum áratug. Fjölmörg lið frá Evrópu sýndu honum áhuga áður en hann samdi við Liverpool árið 2009.

Hann eyddi þremur árum með unglinga- og varaliði félagsins áður en hann sneri aftur til FH árið 2012. Kristján Gauti spilaði með liðinu næstu tvö árin en öflug byrjun hans sumarið 2014 skilaði honum samningi hjá NEC Nijmegen í Hollandi.

Kristján lék með liðinu í tvö ár áður en hann ákvað óvænt að leggja skóna á hilluna og fór að einbeita sér að öðru. Hann tjáði sig aldrei opinberlega um ástæðuna.

Guðmundur Benediktsson sagði frá því á Stöð 2 Sport í gærkvöldi að Kristján Gauti gæti tekið fram skóna að nýju og spilað með Stjörnunni.

Kristján Gauti mætti á eina æfingu hjá Stjörnunni en hefur ákveðið að semja við uppeldisfélagið og mun því leika með FH-ingum í sumar. Það er búist við að félagið tilkynni þetta á næstu dögum.

FH mætir HK í fyrstu umferð Pepsi-Max deildarinnar en liðin eigast við á sunnudag í Kórnum klukkan 18:00.
Athugasemdir
banner
banner