Fotbolti.net
11.06.23 - 22:07
Elvar Geir Magnússon

Danijel Djuric: Arnar búinn að smíða mjög góðan Danijel

Auglýsing
Danijel Djuric: Arnar búinn að smíða mjög góðan Danijel
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Víkingur er með fimm stiga forystu á toppi Bestu deildarinnar þegar siglt er inn í landsleikjahlé. Liðið vann 3-1 sigur gegn Fram í kvöld. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik og heimamenn sigldu sigrinum í höfn eftir hlé.

Danijel Djuric skoraði sitt þriðja deildarmark á tímabilinu og er að komast á flug eftir frekar rólega byrjun persónulega á tímabilinu.
„Þetta var ekki skemmtilegasti seinni hálfleikurinn en við sigldum þessu heim," sagði Danijel. „Við erum með það góða leikmenn að við þurfum ekki mörg færi til að skora. Mikil gæði."

„Byrjunin (á mótinu hjá honum persónulega) var smá erfið. En mér líður eins og ég sé kominn á gott ról, gamli Danijel sé kominn aftur. Ég er búinn að læra mikið af því sem Arnar (Gunnlaugsson) hefur verið að segja mér. Hann er búinn að smíða góðan Danijel."

„Það var erfitt (að vera á bekknum um tíma) en samt hollt. Arnar vissi alveg hvað hann var að gera. Mér líður mjög vel núna."

Danijel er á leiðinni í verkefni með U21-landsliðinu og ræðir það einnig í viðtalinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.