Fotbolti.net
11.06.25 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lið og leikmaður 7. umferðar - Frábær eftir flutninga til Grindavíkur

Ármann Ingi í leik með Grindavík.

Ármann Ingi í leik með Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Sjöunda umferð Lengjudeildar karla var leikin í heild sinni síðasta mánudag og það er komið að því að gera hana upp.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR:
Ármann Ingi Finnbogason var besti maður vallarins þegar tíu Grindvíkingar komu til baka gegn HK. Breytti leiknum með hraða og snerpu á hægri vængnum. Lagði upp bæði mörk Grindavíkur og hann hefði átt að ljúka leik með fleiri stoðsendingar. Frábær leikur hjá Ármanni sem flutti til Grindavíkur á föstudegi og afgreiddi HK á mánudegi.


Sölvi Snær Ásgeirsson var einnig virkilega flottur í þessum sterka sigri Grindvíkinga og er Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfari umferðarinnar.

Leiknismenn eru komnir á ról eftir að Ágúst Gylfason tók við liðinu. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði tvennu í sigri á Völsungi og þar var Axel Freyr Harðarson einnig mjög sterkur.

Frosti Brynjólfsson var maður leiksins í kærkomnum sigri Selfyssinga gegn Fjölni en Alfredo Ivan Sanabria var líka góðum í þeim sigri.

Aron Birkir Stefánsson var besti maður vallarins í jafntefli Þórs gegn ÍR og þá voru Muhamed Alghoul og Theodór Ingi Óskarsson bestir er Keflavík og Fylkir skildu jöfn. Liam Daði Jeffs var öflugur hjá Þrótti í jafntefli gegn Njarðvík en þar var Sigurjón Már Markússon einnig góður.

Næsta umferð Lengjudeildarinnar hefst á föstudaginn.

Fyrri úrvalslið:
6. umferð - Ívar Arnbro Þórhallsson (Völsungur)
5. umferð - Jóhann Þór Arnarsson (HK)
4. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
3. umferð - Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)
2. umferð - Ibrahima Balde (Þór)
1. umferð - Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)

Dagur Ingi Hammer skoraði tvö fyrir Leikni.

Dagur Ingi Hammer skoraði tvö fyrir Leikni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Frosti átti góðan leik fyrir Selfossi.

Frosti átti góðan leik fyrir Selfossi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.