Thelma Karen Pálmadóttir (FH)
Aðra umferðina í röð er það FH sem á leikmann umferðarinnar í Bestu deild kvenna. Í þetta skiptið er það hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir sem átti frábæran leik í sterkum sigri gegn Víkingum.
Thelma Karen skoraði tvö mörk fyrir FH í leiknum og var það seinna í flottari kantinum.
Thelma Karen skoraði tvö mörk fyrir FH í leiknum og var það seinna í flottari kantinum.
„FH-ingar keyra fram í sókn og var þetta bara eitt flottasta liðsmark deildarinnar til þessa," skrifaði Brynjar Ingi Erluson í beinni textalýsingu frá leiknum.
Eftir leikinn skrifaði hann svo um Thelmu:
„Thelma Karen með tvennu. Fyrra markið ótrúlega gott skot eftir ágætis sprett, sem fór í stöng og inn og seinna eftir frábært samspil."
Thelma Karen er 17 ára gömul en hefur þrátt fyrir það verið í algjöru lykilhlutverki hjá skemmtilegu FH-liði í sumar. Hún er kantmaður sem getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún þrisvar sinnum verið í liði umferðarinnar hér á Fótbolta.net.
„Það er mikilvægt að halda áfram á þessari braut og fyrir hópinn að sækja góð úrslit í hverri umferð. Sjálfstraustið er í botni og við ætlum að halda okkur í toppbaráttunni," sagði Thelma Karen við Vísi eftir leikinn en FH er í þriðja sæti, þremur stigum frá toppnum eftir sigurinn á Víkingum.
Sterkastar í síðustu umferðum:
1. umferð - Samantha Smith (Breiðablik)
2. umferð - Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Víkingur R.)
3. umferð - Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
4. umferð - Alda Ólafsdóttir (Fram)
5. umferð - Sandra María Jessen (Þór/KA)
6. umferð - Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
7. umferð - Birna Kristín Björnsdóttir (FH)
Athugasemdir