Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 22:56
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeild kvenna: Skoraði þrennu í sigri ÍA
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
ÍA 5 - 1 Selfoss
1-0 Erna Björt Elíasdóttir ('13 )
2-0 Alexa Maletis ('20 )
3-0 Alexa Maletis ('26 )
3-1 Stevie Madonna Reynolds ('49 )
4-1 Alexa Maletis ('58 )
5-1 Sophie Guilmette ('90 , sjálfsmark)

Alexa Maletis skoraði þrennu er ÍA vann Selfoss, 5-1, í Lengjudeild kvenna í kvöld.

Skagakonur fengu draumabyrjun er Erna Björt Elíasdóttir kom þeim yfir á 13. mínútu. Alexa kom þeim í þriggja marka forystu með tveimur mörkum á sex mínútum um miðjan fyrri hálfleikinn og var staðan 3-0 þegar flautað var til loka hálfleiksins.

Steve Madonna Reynolds minnkaði muninn fyrir Selfoss á 49. mínútu en níu mínútum síðar fullkomnaði Alexa þrennuna og er hún nú markahæst í deildinni með átta mörk á fyrsta tímabili sínu með liðinu.

ÍA náði í fimmta markið undir lok leiks er Sophie Guilmette, leikmaður Selfyssinga, setti boltann í eigið net og þar við sat.

Þetta var þriðji sigur ÍA í deildinni en liðið er nú í 4. sæti með 10 stig, fimm stigum frá toppnum á meðan Selfoss er í 7. sæti með 7 stig.
Lengjudeild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 5 5 0 0 15 - 8 +7 15
2.    Grótta 5 4 0 1 16 - 7 +9 12
3.    KR 5 4 0 1 14 - 7 +7 12
4.    ÍA 7 3 1 3 17 - 11 +6 10
5.    Keflavík 5 2 1 2 11 - 8 +3 7
6.    Völsungur 6 2 1 3 10 - 10 0 7
7.    Selfoss 6 2 1 3 10 - 13 -3 7
8.    FHL 5 1 1 3 7 - 9 -2 4
9.    HK 5 1 1 3 7 - 13 -6 4
10.    Tindastóll 5 0 0 5 3 - 24 -21 0
Slapp
banner