Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, glímir við bakmeiðsli þessa stundina og er óvíst hvenær hann snýr aftur á völlinn. Höskuldur hafði verið tæpur og fór meiddur af velli í fyrri hálfleik gegn Fram í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.
Kristján Óli Sigurðsson, stuðningsmaður Breiðabliks, sagði í Þungavigtinni í gær að Höskuldur myndi ekki spila neitt í júní.
Kristján Óli Sigurðsson, stuðningsmaður Breiðabliks, sagði í Þungavigtinni í gær að Höskuldur myndi ekki spila neitt í júní.
„Hann er að eiga við smá bakmeiðsli, er að ná sér hægt og rólega af því. Við verðum aðeins að sjá hvernig næstu dagar og vikur verða," segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.
Er hann þá ekki með á morgun og óvíst með Stjörnuleikinn í næstu viku (þriðjudag)?
„Það verður að skýrast, hann þarf að fá smá tíma til að ná þessu úr sér, hvað það verður langur tími nákvæmlega... það er ekki hægt að setja neina dagsetningu á það," segir þjálfarinn.
Framundan hjá Breiðabliki er leikur gegn Ægi á útivelli í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Leikurinn hefst klukkan 17:30 og fer fram á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn.
Kiddi Jóns og Kiddi Steindórs komnir á fullt
Jónatan Guðni Arnarsson, Valgeir Valgeirsson og Birkir Þorsteinsson eru allir fjarri góðu gamni en það styttist í að Dagur Fjeldsted geti snúið aftur á völlinn.
„Kiddi Jóns og Kiddi Steindórs eru komnir á fullt, Kiddi Steindórs kom auðvitað inn á gegn Fram og Kiddi Jóns er byrjaður að æfa á fullu - mjög jákvætt að fá hann til baka. Valgeir og Jónatan eru frá, Dagur Fjeldsted er að komast af stað. Birkir Þorsteins fór í liðþófaaðgerð og verður eitthvað aðeins lengur frá. Menn eru að skríða saman sem er jákvætt, allt að þokast í rétta átt," segir Óli.




