Fotbolti.net
31.07.26 - 12:40
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Víkingur og Stjarnan hefðu farið áfram með hann í markinu

Frederik Schram.

Frederik Schram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net er rætt um frammistöðu markvarða íslensku liðanna í Evrópuleikjum vikunnar. Frederik Schram var magnaður í rammanum með Val sem sló Zrinjski Mostar út í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

„Er einhver með tölu á vörðum skotum hjá honum yfir leikina tvo? Vítavarslan frábær og allar hinar með. Frederik ekkert minna en stórkostlegur," skrifaði Sverrir Örn Einarsson í skýrslu um seinni leikinn.
Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju
TENGT EFNI

Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju

Lestu um leikinn: Zrinjski Mostar 2 - 2 Valur
„Það voru tveir menn sem unnu einvígið fyrir Val og annar þeirra er aftast," segir Tómas Þór Þórðarson í þættinum en hinn er Tryggvi Hrafn Haraldsson sem skoraði öll þrjú mörk Vals í einvíginu.

„Þegar þú ert kominn á þetta stig í Evrópukeppnum þarftu í ansi mörgum tilfellum að fá eitthvað aukalega frá markmönnunum þínum. Af þremur tilfellum var eitt lið sem fékk það," segir Valur Gunnarsson og vísar þar í töpin hjá Víkingi og Stjörnunni. Í þættinum er talað um að þau lið hefðu klárlega komist áfram með Frederik Schram í markinu í þessum ham.

Tómas telur að Aron Snær Friðriksson hefði átt að verja bæði mörkin þegar Víkingur tapaði 2-0 gegn Hapoel Be'er Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar. „Það munar um það að Víkingur fékk ekki nauðsynlegar markvörslur," segir Tómas.

Árni Snær Ólafsson hefur átt erfitt tímabil með Stjörnunni en Garðabæjarliðið tapaði í vítakeppni gegn Ilves frá Finnlandi. Finnarnir skoruðu úr öllum spyrnum sínum.

„Í vítakeppnum er markvörðurinn aldrei skúrkurinn en manni fannst hann ekki líklegur til að verja. Hann fór þrisvar í rétt horn en það var samt svo pirrandi hvað hann var langt frá því að verja þetta," segir Valur.

Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.