Toddi ræðir fjaðrafokið í kringum Infantino - „Allir einhuga um þessa afstöðu“

Gianni Infantino og Þorvaldur Örlygsson.

Mynd: KSÍ

Toddi á tali við Ceferin, forseta UEFA.

Mynd: KSÍ

Eysteinn Pétur Lárusson sat fundinn sömuleiðis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjórn KSÍ einhuga í afstöðu sinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Infantino hefur hlotið mikla gagnrýni.

Mynd: EPA

„Þetta fjármagn sem FIFA fær er eign þeirra 211 þjóða sem eru í FIFA.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gianni Infantino og Þorvaldur Örlygsson.

Mynd: KSÍ
Þetta fjármagn sem FIFA fær er eign þeirra 211 þjóða sem eru í FIFA. Við heyrum undir bæði UEFA og FIFA og styðjum þau heilshugar þegar á við en gagnrýnum þau líka,“ segir Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, í samtali við Fótbolta.net.
Áform FIFA um að selja 21 prósents hlut í heimsmeistaramótinu, ásamt fleiri innviðum sambandsins, til fjárfesta hafa valdið miklu fjaðrafoki síðustu daga.
UEFA boðaði til rafræns neyðarfundar í gærdag og birti eftir fundinn yfirlýsingu sem sagði að þau 55 aðildarlönd sem heyra undir UEFA myndu sniðganga HM í mótmælaskyni ef áætlanir FIFA ganga eftir.
Fyrir hönd KSÍ mættu Þorvaldur og Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri. Fótbolti.net ræddi við Þorvald um fundinn fyrr í dag.

Einróma samþykkt hjá UEFA að sniðganga HM ef áætlanir FIFA ná fram að ganga
„Á fundinum var mikil samstaða, það tóku nær allir til máls og lýstu yfir fullum stuðningi við afstöðu UEFA. Menn gagnrýndu það ferli sem FIFA hefur viðhaft og þessa stjórnunarhætti sem hafa verið í þessu máli. Þetta kemur aftan að mönnum, hvorki búið að tala við menn innan stjórnar FIFA né aðra. En það sem maður tekur út úr fundinum var hversu mikil samstaðan er,“ segir Toddi.
Var enginn sem setti sig upp á móti UEFA?
„Nei, enginn. Aleksander Ceferin talaði fyrstur máli og lokaði fundinum. Hann óskaði eftir stuðningi á bakvið þá yfirlýsingu sem kom út í gær. Það var enginn sem fór á móti því, allir samstíga.“
Stjórn KSÍ einhuga í afstöðu sinni
Stjórn KSÍ fundaði í morgun um neyðarfund UEFA í gær. Þorvaldur segist hafa upplýst stjórnina um allar þær fregnir sem þeir höfðu fengið í vikunni.
„Ég og Eysteinn sátum fundinn í gær. Á fundinum í dag upplýstum við um hvað fór fram á fundinum og það var mikill hugur og stuðningur frá stjórn. Niðurstaða fundarins í morgun er að stjórn KSÍ er einhuga í afstöðu sinni og tekur undir með UEFA. Það voru mjög góðar umræður í morgun. Við erum með góða stjórn og gott fólk sem tók til máls og við áttum góðar samræður. Það eru allir einhuga um þessa afstöðu.“
Lítið hægt að spá í spilin
Bæði Concacaf og fótboltasamband Asíu hafa sett sig upp á móti áformum FIFA. Samböndin tvö hafa þó ekki gengið jafn langt og UEFA og hótað að sniðganga heimsmeistaramótið. Þorvaldur var spurður um hvernig hann sæi framhaldið fyrir sér.
„Það er voða erfitt að segja til um það. Við hjá KSÍ sitjum og fylgjumst með og sjáum hvernig málin þróast, tökum afstöðu út frá því hvernig málin þróast. Það er lítið hægt að spá í spilin. Við þurfum að sjá hvað gerist á næstu dögum og vikum,“ segir Þorvaldur að lokum.

Toddi á tali við Ceferin, forseta UEFA.

Mynd: KSÍ

Eysteinn Pétur Lárusson sat fundinn sömuleiðis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjórn KSÍ einhuga í afstöðu sinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Infantino hefur hlotið mikla gagnrýni.

Mynd: EPA

„Þetta fjármagn sem FIFA fær er eign þeirra 211 þjóða sem eru í FIFA.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


