Langar að vera hluti af uppbyggingu Vals - „Umræðan oft og tíðum ómálefnaleg"


Mynd: Valur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skrifaði undir í Njarðvík eftir tímabilið 2022.

Mynd: Njarðvík


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þekkir til Dóra frá tíma þeirra í Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Að öðru leyti fóru öll formleg samskipti af minni hálfu í gegnum stjórnina og Gareth Owen

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Valur
Hann gengur formlega í raðir félagsins eftir tímabilið og kemur frá Njarðvík þar sem hann hefur verið undanfarin ár. Hann var með lausan samning og kemur því á frjálsri sölu.

Tómas Bjarki í Val (Staðfest)
Réttur tímapunktur að taka skrefið upp um deild
Miðjumaðurinn, sem hefur verið lykilmaður í liðinu og fyrirliði Njarðvíkur, sleit krossband í vetur og spilar því ekkert á þessu tímabili.
„Það er margt sem heillar við Val en það er einna helst aðstaðan og umgjörðin í kringum félagið, sem og verkefnið sem þeir eru að fara í. Það er greinilegt að það eru miklar kröfur gerðar og það er eitthvað sem ég sækist eftir, að vera í umhverfi þar sem fólk vill alltaf verða betra. Mér fannst líka bara vera kominn tímapunktur hjá mér að taka skrefið upp í Bestu deildina og þegar þetta tækifæri kom upp fannst mér þetta vera rétta skrefið fyrir mig."
Umræðan oft og tíðum ómálefnaleg
Umræðan um Val hefur ekki alltaf verið frábær síðustu misserin, þú hefur ekkert verið hikandi í þinni ákvörðun út af umræðunni?
„Maður hefur auðvitað orðið var við umræðuna í kringum Val, en að mínu mati er hún oft og tíðum fremur ómálefnaleg og fólk áttar sig ekki á því að það eru tvær hliðar á öllum málum. Ég hef því ekkert látið það hafa áhrif á mína ákvörðun. Ég horfi meira á það sem ég upplifi sjálfur, fólkið innan félagsins og verkefnið sem er fram undan. Ég er mjög spenntur fyrir þessu og einbeittur að því að koma inn og leggja mitt af mörkum."
Ekki auðveld ákvörðun
Tómas Bjarki, sem fæddur er 2003, er uppalinn í Breiðabliki en er á sínu fjórða tímabili í Njarðvík.
Varstu í viðræðum við Njarðvík um nýjan samning?
„Já, ég hef verið í viðræðum við Njarðvík um nýjan samning í dágóðan tíma og átt ótal góð samtöl við Davíð, Rabba og marga stjórnarmenn. Sambandið okkar á milli er frábært og þess vegna var þetta alls ekki auðveld ákvörðun. Á sama tíma var maður að klára grunnnámið í lögfræðinni og stefnan sett á masterinn, þannig að það var farið að verða krefjandi að taka Reykjanesbrautina á hverjum degi."
Á Njarðvík og fólkinu mikið að þakka
Er erfitt að fara frá félaginu?
„Það verður gríðarlega erfitt að fara frá félaginu eftir fjögur frábær ár. Mér finnst líka svolítið leiðinlegt að fara á þessum tímapunkti, en svona er lífið. Ég á félaginu og fólkinu þar mjög mikið að þakka. Við vorum miklir klaufar að fara ekki upp í Bestu deildina á síðasta ári og það var auðvitað svekkjandi, en ég hef fulla trú á strákunum núna í ár."
„Ég mun sakna strákanna mikið og eignaðist ég þarna marga af mínum bestu vinum."
Festir sig ekki of mikið í hvað ef
Eins og fyrr segir er Tómas að jafna sig eftir að hafa slitið krossband. Hann var spurður út í meiðslin.
„Heilsan er góð og allt gengur samkvæmt áætlun hjá mér og sjúkraþjálfaranum. Ég fer að byrja að hlaupa í lok vikunnar og eftir það fara hlutirnir vonandi bara að rúlla enn betur. Ég er ánægður með hvernig endurhæfingin hefur gengið hingað til."
„Þegar maður horfir til baka er alveg pottþétt eitthvað sem maður hefði getað gert öðruvísi. En á sama tíma var brotið á mér þegar ég var að sleppa einn í gegn, sem hafði þessar afleiðingar, og ég er ekki viss um að öðruvísi skóbúnaður hefði breytt einhverju varðandi það. Maður getur svo sem ekki fest sig of mikið í því heldur einbeitt sér að því sem maður hefur stjórn á, sem er að huga vel að endurhæfingunni og koma tvíefldur til baka."
„Hlutverkið mitt á þessu tímabili hefur verið svolítið skrýtið. Ég hef meira verið í svona peppandi hlutverki, mætt á æfingar og leiki og reynt að halda uppi stemningunni hjá strákunum. Svo hefur maður bara verið uppi í stúku að syngja og tralla með öðrum stuðningsmönnum Njarðvíkur."
Auðvitað hefur Dóri áhrif
Við hverja hjá Val ræðir þú í aðdragandanum, áttu samtöl við verðandi þjálfara liðsins, Halldór Árnason?
„Eins og ég kom inn á áðan þá hefur aðdragandinn að þessu verið nokkuð langur. Ég heyrði fyrst af áhuga frá Val, þó svo ekkert formlegt hafi verið eftir síðasta tímabil, þegar við vorum hársbreidd frá því að fara upp í Bestu deildina, og svo núna aftur fyrir nokkrum vikum síðan."
„Ég þekki hins vegar vel til Dóra af góðu einu frá tíma mínum í Breiðabliki og auðvitað hefur það áhrif á ákvörðunina mína að hann sé verðandi þjálfari liðsins, enda veit ég hvers konar þjálfari og karakter hann er."
„Að öðru leyti fóru öll formleg samskipti af minni hálfu í gegnum stjórnina og Gareth Owen. Ég er svo bara gríðarlega spenntur fyrir því sem er fram undan hjá félaginu og hlakka til að verða hluti af því verkefni."
Langar að afreka margt hjá Val
Hvað langar þig til að afreka hjá Val?
„Það er margt sem mig langar til að afreka hjá Val. Mig langar fyrst og fremst að vera partur af þessari uppbyggingu sem er í gangi hjá félaginu og hjálpa liðinu að ná þeim markmiðum sem það setur sér. Valur er félag sem stefnir alltaf hátt og ég vil vera hluti af því að ná þeim markmiðum, bæði innan sem utan vallar."
„Persónulega er markmiðið mitt að koma sterkari til baka eftir meiðslin en ég var áður, komast aftur í mitt besta form og geta hjálpað liðinu sem mest. Mig langar að vera mikilvægur hluti af liðinu og leggja mitt af mörkum til þess að við náum góðum árangri á komandi tímabili. Svo væri nú ekkert verra að lauma inn nokkrum mörkum af og til," segir Tómas Bjarki að lokum.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skrifaði undir í Njarðvík eftir tímabilið 2022.

Mynd: Njarðvík


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þekkir til Dóra frá tíma þeirra í Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Að öðru leyti fóru öll formleg samskipti af minni hálfu í gegnum stjórnina og Gareth Owen

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

