Benfica fær Trubin og Cabral (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Portúgalska stórveldið Benfica gekk frá tveimur félagsskiptum í gær þegar félagið tilkynnti markvörðinn Anatoliy Trubin og framherjann Arthur Cabral.
Benfica kaupir úkraínska landsliðsmarkvörðinn Trubin af Shakhtar Donetsk fyrir 11 milljónir evra, en Shakhtar heldur 40% endursölurétti á leikmanninum og stendur til að þéna væna upphæð á næstu félagsskiptum hans ef vel gengur.
Trubin, sem er aðeins 22 ára gamall, var eftirsóttur í sumar þar sem Inter reyndi meðal annars að krækja í hann en hann endar hjá Benfica. Þar mun hann berjast við gríska landsliðsmarkvörðinn Odysseas Vlachodimos um byrjunarliðssæti.
Cabral er 25 ára framherji sem kemur úr röðum Fiorentina og er Benfica talið borga 25 milljónir evra fyrir.
Brasilíumaðurinn skoraði 17 mörk í 48 leikjum á síðustu leiktíð og á að fylla í skarðið sem Goncalo Ramos skilur eftir sig með félagsskiptunum til Frakklandsmeistara PSG.
Þeir gera báðir fimm ára samninga til 2028.


Mynd: EPA




