Brighton búið að samþykkja tilboð frá Liverpool

Caicedo er með 32 landsleiki að baki fyrir Ekvador þrátt fyrir ungan aldur.

Mynd: EPA

Caicedo er með 32 landsleiki að baki fyrir Ekvador þrátt fyrir ungan aldur.

Mynd: EPA
Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano heldur því fram að Brighton sé búið að samþykkja tilboð frá Liverpool í ekvadorska miðjumanninn Moises Caicedo.
Romano segir að kaupverðið geti náð allt að 110 milljónum punda með aukagreiðslum, en Brighton hafði hafnað 60 milljónum frá Arsenal í janúar og 80 frá Chelsea fyrr í sumar.
Liverpool vill ganga frá skiptunum sem fyrst og er að bóka læknisskoðun fyrir Caicedo í dag. Stjórnendur vilja að leikmaðurinn verði búinn að skrifa undir samning fyrir dagslok til að forðast að Chelsea steli leikmanninum.
Stjórnendur Liverpool og Brighton voru að störfum langt fram á nótt í gær til að gera alla pappíra klára fyrir félagsskiptin.
Caicedo er 21 árs miðjumaður sem lék mikilvægt hlutverk í skemmtilegu liði Brighton á síðustu leiktíð.




