Fotbolti.net
11.08.23 - 16:49
Ívan Guðjón Baldursson

Caicedo átti að fara til Liverpool en varð eftir í London

Caicedo átti að fara til Liverpool en varð eftir í London
Canon

Mynd: Getty Images

Framtíð Moises Caicedo liggur í lausu lofti eftir að miðjumaðurinn efnilegi hafnaði því að fara til Liverpool.

Brighton hefur samþykkt að selja Caicedo sem vill ólmur skipta um félag og ákvað að selja hann til hæstbjóðanda. Þrjú félög lögðu fram tilboð í gær og stóð Liverpool uppi sem hæstbjóðandi, með 111 milljón punda tilboð. 

Chelsea er talið hafa boðið 100 milljónir punda og eru Þýskalandsmeistarar FC Bayern sagðir hafa boðið 90 milljónir.

Caicedo átti að fara í læknisskoðun hjá Liverpool í dag en ákvað að vera eftir í London. Hann er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningstilboði frá Chelsea og ætlar að standa við það.

Þetta þýðir að Chelsea þarf líklegast að jafna 111 milljón punda tilboð Liverpool til að krækja í leikmanninn. Það gæti sett félagið í vandræði þegar kemur að fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA, sérstaklega eftir meiðsli Christopher Nkunku sem neyða félagið til að fjárfesta í sóknarleikmanni.

Brighton gaf áhugasömum félögum tíma þar til í gær til að leggja fram tilboð í Caicedo og er óljóst hvort félagið sé reiðubúið til að setjast niður við samningaborðið með Chelsea.

Caicedo er 21 árs gamall og borgaði Brighton aðeins um 5 milljónir punda fyrir hann í febrúar 2021. Hann kom frá ekvadorska félaginu Independiente del Valle sem hélt góðri prósentu af endursölurétti leikmannsins og getur búist við vænni greiðslu ef félagsskipti ganga í gegn í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.