Cavaleiro frá Fulham til Lille (Staðfest) - Miramón og Santos komnir


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Lille er að styrkja hópinn hjá sér fyrir komandi átök haustsins og eru nokkrir leikmenn komnir inn eftir að Hákon Arnar Haraldsson var fenginn frá FC Kaupmannahöfn.
Lille var að krækja í Ivan Cavaleiro frá Fulham, en þessi 29 ára gamli kantmaður gerði fína hluti á láni hjá Alanyaspor í Tyrklandi á síðustu leiktíð, þar sem hann var samherji Rúnars Alex Rúnarssonar.
Cavaleiro gerir eins árs samning við Lille en hann á um 70 leiki að baki fyrir Fulham og rétt tæpa 100 fyrir Wolves, auk þess að eiga tvo landsleiki að baki fyrir Portúgal.
Kaupverðið á Cavaleiro er óuppgefið, en það er talið vera afar lítið. Lille borgar hins vegar um 15 milljónir evra samanlagt fyrir Ignacio Miramón og Tiago Santos.
Miramón er tvítugur miðjumaður frá Argentínu sem kemur úr röðum Gimnasia og gerir fimm ára samning, á meðan Santos er 21 árs gamall hægri bakvörður sem kemur frá Estoril í Portúgal.
Lille krækti einnig í franska miðvörðinn Samuel Umtiti fyrr í sumar og kom hann á frjálsri sölu.


Mynd: Getty Images




