Caicedo hefur sagt Liverpool að hann vilji bara fara til Chelsea

Brighton samþykkti 111 milljóna punda tilboð Liverpool í Caicedo.

Mynd: Getty Images

Brighton samþykkti 111 milljóna punda tilboð Liverpool í Caicedo.

Mynd: Getty Images
Moises Caicedo, miðjumaður Brighton, vill ekki fara til Liverpool. Sky Sports segir að vilji leikmannsins sé að ganga í raðir Chelsea.
Liverpool er tilbúið að gera hann að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans og Brighton hefur samþykkt 111 milljóna punda tilboð.
Ekki hefur fengist staðfesting á því hvort Chelsea hafi komið með endurbætt tilboð í leikmanninn en leikmaðurinn og hans umboðsmenn eru í London. Chelsea hefur reynt að fá hann í allt sumar.

Caicedo er frjálst að fara í læknisskoðun hjá Liverpool eftir að tilboðið var samþykkt en BBC segir að málið sé alls ekki komið það langt að hægt sé að fullyrða að hann verði leikmaður félagsins.
Uppfært: Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að Caicedo hafi tilkynnt Liverpool að hann vilji bara fara til Chelsea. Fyrr í sumar gerði hann munnlegt samkomulag um kaup og kjör.
Uppfært: Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að Caicedo hafi tilkynnt Liverpool að hann vilji bara fara til Chelsea. Fyrr í sumar gerði hann munnlegt samkomulag um kaup og kjör.
EXCLUSIVE: Moisés Caicedo has just informed Liverpool that he only wants to join Chelsea! ???????????????? #CFC
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 11, 2023
Caicedo has decided to keep his word and only accept Chelsea as personal terms were agreed since end of May.
Chelsea, set to bid again in order to get deal done with Brighton. pic.twitter.com/HI3geVVq9Z