Góðgerðarleikur Vincent Kompany er í gangi þessa stundina en úrvalslið leikmanna er að vinna goðsagnir Manchester City, 2-1.
Goðsagnalið Man City komst yfir á 2. mínútu með marki frá Martin Petrov en þá varð einhver misskilningur milli Jamie Carragher og Gary Neville.
Carragher lék með Liverpool allan sinn feril á meðan Neville lék með Manchester United en þeir tveir mynda öflugt sparkspekingateymi á Sky Sports.
Neville var ósáttur við varnarleik Carragher í markinu. Hann skammaði hann er Petrov skoraði laglegt mark áður en Neville þurfti að fara af velli á 35. mínútu vegna meiðsla.
Hægt er að sjá myndband af markinu hér fyrir neðan.
This was City taking the lead after some... questionable defending from Jamie Carragher and Gary Neville...#Tackle4MCR #ManCity pic.twitter.com/fAv6W3YrX8
— Man City | Superbia (@SuperbiaProeIia) September 11, 2019
Athugasemdir