Þrír leikir fóru fram í 4. deild karla nú í kvöld en leikið var í A og D riðli.
Í D riðli vann KB 2-0 sigur á Smára. Ólafur Hrannar Kristjánsson gerði tvennu í leiknum. KB endaði í sjötta sæti riðlilsins með 16 stig en Smári í því fimmta með 19 stig.
Í hinum leik riðilsins vann topplið Kríu lið Hvíta Riddarans á útivelli. Kría fór því taplaust í gegnum riðilinn en KH fylgir liðinu áfram í úrslitakeppnina.
Léttir og Ýmir mættust í A-riðli. Úrslit og markaskorarar sendist á [email protected]
KB 2-0 Smári
1-0 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('3)
2-0 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('67)
Hvíti Riddarinn 1-2 Kría
Athugasemdir